KEA kaupir eignasafn Íveru á Akureyri

HalldóriJóhannsson  framkvæmdastjóri KEA og Egill Lúðvíksson forstjóri Íveru við undirritun samninga…
HalldóriJóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Egill Lúðvíksson forstjóri Íveru við undirritun samninga í dag. Mynd KEA

Ívera íbúðafélag, áður Heimstaden, hefur gengið frá samningum við dótturfélag KEA um kaup hins síðarnefnda á um 120 íbúðum Íveru á Akureyri. Kaupverð eignanna er rúmir 5 milljarðar króna.

Ívera hefur nýverið gefið út áform um tvöföldun á eignasafni sínu sem er í dag um 1.600 íbúðir. Sala eignanna á Akureyri er liður í endurskipulagningu eignasafnsins og styrkir undirstöður félagsins fyrir frekari vöxt. Í viðræðunum lögðu Ívera og KEA áherslu á áframhaldandi húsnæðisöryggi fyrir leigutaka íbúðanna en stefna KEA er að reka íbúðasafnið til langs tíma og stefnir félagið á frekari vöxt á þessu sviði. Því munu viðskiptin ekki að hafa neikvæð áhrif á núverandi leigutaka. Viðskiptin marka brotthvarf Íveru af íbúðamarkaði á Akureyri og félagið stefnir ekki á frekari umsvif þar í náinni framtíð.  Stefnt er að afhendingu eignanna fyrir jól.

Egill Lúðvíksson, forstjóri Íveru: „Það er ánægjulegt að skerpa á rekstri félagsins með þessari endurskipulagningu í okkar rekstri og horfa á eftir eignunum á Akureyri í hendur trausts aðila með metnaðarfull langtímaáform. Eignirnar eru vel staðsettar og hafa verið eftirsóttar á leigumarkaði. KEA er rótgróinn fjárfestir í sínu nærumhverfi og gildi þeirra fara vel saman við okkar. Ég trúi að leigutakarnir verði ánægðir með þessi viðskipti.“

 Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA: „Þessi kaup eru fyrsta skref KEA inn á íbúðaleigumarkaðinn hér á nærsvæði okkar en í gegnum dótturfélagið Skálabrún hyggst KEA byggja upp til lengri tíma safn íbúða til almennrar útleigu. Það er ekkert stórt sérhæft og staðbundið félag um leigu íbúða á almennum markaði hér á þessu svæði og við erum að breyta þeirri umgjörð með þessum kaupum. Það hefur skort félag eins og þetta á þessum markaði og þessi fjárfesting muni til lengri tíma styrkja almennan íbúðaleigumarkað á svæðinu. Þetta er ein stærsta fjárfesting KEA í nokkurn tíma en hún er liður í þeim breyttu áherslum hjá félaginu að auka verulega vægi fasteignatengdra verkefna á efnahagsreikningi sínum ásamt því að fækka og stækka þau verkefni sem eru á höndum félagsins. 

Ásamt því að reka íbúðaleigufélag stefnum við á að taka þátt í þróunarverkefnum ýmiskonar á fasteigna- og íbúðamarkaði á okkar nærsvæði“.

Segir í tilkynningu um málið rétt i þessu,

 

Nýjast