Dagskráin 29. janúar - 5. febrúar - Tbl 4
Kaldbakur, Björgúlfur og Björg aflahæstu togarar landsins á síðasta ári
Systurskip Samherja, Kaldbakur EA 1, Björgúlfur EA 312 og Björg EA 7 eru í þremur efstu sætum yfir aflahæstu togara ársins 2024.
Aflahæsti togarinn var Kaldbakur, afli skipsins var 8.933 tonn. Í öðru sæti var Björgúlfur, með 8.687 tonn og í þriðja sæti var Björg með 8.186 tonn á síðasta ári.
Vefurinn aflafrettir.is tekur saman veiðar íslenskra skipa og birtir á vef sínum og eru tölurnar fengnar þaðan.
Togarar Samherja sjá landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík fyrir hráefni, þar sem starfa um þrjú hundruð manns. Sjómenn á skipum Samherja eru samtals um tvö hundruð, enda tvöföld áhöfn á hverju skipi.
Veiðar, vinnsla og sala afurða fara saman
Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja segir að systurskipin hafi reynst afskaplega vel. „ Í sjálfu sér er ekki sérstakt markmið að vera í efstu sætum á þessum listum, verkefnið er fyrst og fremst að koma á tilsettum tíma með góðar afurðir til vinnslu. Hráefnisstýring er stór þáttur í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja, þar sem veiðar, vinnsla og sala afurða fara saman. Til þess að sjá vinnslunum fyrir hráefni, þurfa skipin að landa sex til sjö sinnum í viku, sem þýðir í raun að þau landa stundum tvisvar sinnum í sömu vikunni. Stýring veiða getur því á köflum verið nokkuð flókin. Okkur tókst að halda vinnslunum gangandi alla daga ársins nema tvo vegna óveðurs, enda kallar markaðurinn eftir stöðugu framboði.“
„Systurskipin eru að verða átta ára gömul og hafa þau reynst okkur afskaplega vel, enda var vandað til allra verka við smíði þeirra og viðhald hefur alltaf verið með ágætum. Síðast en ekki síst eru skipin vel mönnuð, valinn maður er í hverju plássi á öllum skipum félagsins,“ segir Kristján Vilhelmsson.
Heimasíða Samherja segir fyrst frá