Innkirtlamóttaka SAk fagnar 10 ára afmæli

Þær stöllur  Eva Hilmarsdóttir og Emilía Fönn Andradóttir hjúkrunarfræðingar taka vel á móti þeim se…
Þær stöllur Eva Hilmarsdóttir og Emilía Fönn Andradóttir hjúkrunarfræðingar taka vel á móti þeim sem til þeirra leita

Frá upphafi hefur móttakan verið mikilvæg þjónusta fyrir einstaklinga með sykursýki og áður fyrir þau sem takast á við aðra innkirtlasjúkdóma á starfssvæði SAk. Hefur innkirtlamóttakan skipt talsverðu máli við að veita nærþjónustu og samfellu í meðferð. Innkirtlamóttaka SAk er innan Göngudeildar lyflækninga sem áður var Almenn göngudeild.

Í upphafi samanstóð teymið af hjúkrunarfræðingunum Árúnu K. Sigurðardóttur og Evu Hilmarsdóttur, innkirtlasérfræðingnum Finnboga Karlssyni og næringarfræðingnum Borghildi Sigurbergsdóttur. Í dag sinna Eva Hilmarsdóttir og Emilía Fönn Andradóttir hjúkrunarfræðingar móttökunni.

Þróun starfseminnar

Í nokkur ár eftir stofnun var starfrækt formlegt samstarf við innkirtlasérfræðinga Landspítala. Þá komu sérfræðingar tvisvar í mánuði norður, en með tímanum færðist þjónustan yfir í fjarviðtöl og samráðsfundi. Samningurinn rann út í apríl 2023 og unnið er að frekari aðkomu innkirtlasérfræðinga. Í dag er þetta því hjúkrunarmóttaka þar sem Eva og Emilía skipta með sér einu stöðugildi. Á móttökuna koma einstaklingar með sykursýki, sem þarfnast insúlínmeðferðar eða hafa flókna sjúkdómsmynd, einnig sinna hjúkrunarfræðingar ráðgjöf á aðrar deildir SAk og heilbrigðisstofnanir. Um 130 einstaklingar nýta nú þjónustu innkirtlamóttökunnar.

Einstaklingsmiðuð þjónusta

Á innkirtlamóttökunni er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu, hvatningu í lífsstíl, meðferðarstýringu og árlegt eftirlit til að fyrirbyggja fylgikvilla. Aðstandendur eru boðnir sérstaklega velkomnir með, enda skiptir stuðningsnet fjölskyldu og vina miklu máli í daglegu lífi með langvinnan sjúkdóm. Sú þjónusta sem hefur verið í boði hefur sparað fjölda ferðalaga suður og létt verulega undir með sjúklingum og fjölskyldum þeirra.

Frá þessu segir á sak.is

Nýjast