Ingvi Quartet, með tónleika á LYST í Lystigarðinum í kvöld

Kvartett Ingva Rafns Ingvasonar, Ingvi Quartet, heldur tónleika á LYST í Lystigarðinum í kvöld og hefjast tónleikarnir kl 20.30.

Leikin verða þekkt og þægileg jazz og blús lög, ásamt frumsaminni tónlist. Þau þekktu og þægilegu eru lög sem listafólk á borð við Frank Sinatra, Natalie Cole, Etta James, Ella Fitzgerald, Bill Evans, Joe Cocker, John Coltrane og fleiri hafa gert vinsæl. 

Það verður notaleg stemmning og ljúfir tónar á Lyst í kvöld.

Kvartettinn skipa þau:

Kjartan Valdemarsson - píanó
Michael Weaver - sax, tenor og flauta
Pétur Ingólfsson - kontrabassi
Ingvi Rafn Ingvason - trommur & söngur

Gestasöngkona er Lydía Rós Björnsdóttir Waage.

Miðasala er á Lyst.is

Nýjast