Ingvar Þóroddsson stefnir á 1. sæti hjá Viðreisn

Ingvar Þóroddsson stefnir á forystusæti fyrir Viðreisn í Norðausturkjördæmi
Ingvar Þóroddsson stefnir á forystusæti fyrir Viðreisn í Norðausturkjördæmi

Ingvar Þóroddsson tilkynnti um helgina að hann stefni á forystusæti fyrir Viðreisn í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Hann sé vel til þess fallinn að tryggja flokknum þingsæti í kjördæminu og tala máli kjósenda í landshlutanum.

Ingvar er 26 ára Akureyringur, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og lærði verkfræði við Háskóla Íslands og Berkeley háskóla í Kaliforníu. Hann sneri þaðan heim til Akureyrar eftir lok meistaranáms og kennir í dag stærðfræði og eðlisfræði við MA. Foreldrar Ingvars eru Þóroddur Ingvarsson og Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir, læknar á sjúkrahúsinu á Akureyri.

..Mín grunngildi hafa nokkurn veginn alltaf verið þau sömu. Ég trúi á frelsi einstaklingsins, sterkt markaðshagkerfi, alþjóðasamstarf og að samfélagið skuli tryggja öllum jöfn og góð tækifæri” segir í tilkynningu frá Ingvari sem horfir björtum augum fram á veginn.

Hann segist jafnframt ætla að leggja áherslu á menntamál en staðan í þeim málaflokki, sem birtist meðal annars í PISA-könnunum og læsi íslenskra barna við lok grunnskólagöngu, veldur honum áhyggjum. Hann telur reynsluna af kennarastarfinu vera gott veganesti í að takast á við það verkefni og segist hlakka til að eiga samtalið við fólk í kjördæminu. 

Ingvar vermdi þriðja sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningunum 2021. Frá þeim tíma hefur Ingvar sinnt trúnaðarstörfum innan flokksins og var til að mynda kjörinn varaforseti ungliðahreyfingar flokksins haustið 2021 og hefur setið í Norðausturráði Viðreisnar síðan 2022. 

Hann segir það fagnaðarefni að tími þessarrar ríkisstjórnar sé liðinn. Kjörtímabilið hafi einkennst af óreiðu í ríkisfjármálum og óeiningu, sem hafi leitt til hárrar verðbólgu og vaxta, en það bitnar ekki síst á ungu fólki og barnafjölskyldum. Þá hafi orkumálum verið haldið í gíslingu í samstarfi ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Allt þetta komi niður á almenningi og fyrirtækjum í landinu. 

..Ég vil leggja mitt af mörkum svo hér geti tekið við ríkisstjórn með Viðreisn innanborðs, sem hefur frjálslynd gildi að leiðarljósi, tekst á við verðbólguna og ryður hindrunum úr vegi fólks og fyrirtækja, í stað þess að búa þær til.” bætir Ingvar við.

Ingvar sér mikil tækifæri í Norðausturkjördæmi og telur mikilvægt að kjördæmið hafi öfluga og fjölbreytta málsvara á þingi.  ,,Ég ætla mér að vera öflugur fulltrúi Norðausturkjördæmis, Viðreisnar, og ungs fólks og barnafjölskyldna um land allt, hljóti ég umboð flokksins og kjósenda til þess”.

Þetta segir í tilkynningu frá Ingvari sem send var fjölmiðlum  í morgun

Nýjast