Dagskráin 29. janúar - 5. febrúar - Tbl 4
Höfum þungar áhyggjur af stöðunni segir bæjarstjóri
Bæjarstjórn Akureyrar hefur skorar á nýja ríkisstjórn að hefjast handa sem fyrst við byggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri. Nú eru tvær full skipulagðar lóðir tilbúnar fyrir starfsemina. Skrifað var undir samning 2019 um byggingu 80 hjúkrunarrýma og lítið sem ekkert gerst síðan þá segir í bókun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar nýverið.
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri segir nauðsynlegt að koma byggingu nýs hjúkrunarheimilis í bænum í farveg. Lengi hafi verið beðið og bæjarstjórn vilji með bókun sinni benda nýrri ríkisstjórn á mikilvægi þess að tekin verði skref fram á við í málinu.
Hefur verið að velkjast í kerfinu of lengi
„Þetta hefur verið að veljast í kerfinu alltof lengi en mjög brýnt að koma verkefninu af stað. Við höfum þungar áhyggjur af stöðunni og leggjum ríka áherslu á að ríkið taki ákvörðun og í framhaldinu verði hafist handa þannig að nýtt hjúkrunarheimili komist í gagnið sem allra fyrst.“
Málefni aldraðra flytjast á milli ráðuneyta 1. mars næstkomandi, fara úr ráðuneyti heilbrigðismála yfir til félagsmálaráðuneytis. „Ég vona svo sannarlega að sá flutningur verði ekki til að tefja málið enn frekar. Nú er nóg komið og við viljum sjá eitthvað gerast,“ segir Ásthildur.
Tvær lóðir til reiðu
Akureyrarbær hafi til reiðu tvær lóðir, við Vestursíðu og Þursaholt þannig að ekki standi á bænum að uppfylla sitt hlutverk . Hún bendir á að því miður virðist margir halda að reksturhjúkrunarheimils sé á forræði Akureyrarbæjar en svo sé ekki. Ríkið beri ábyrgð á uppbyggingu og rekstri hjúkrunarheimila. . Þegar kemur að málefnum aldraðra hafi bærinn heimaþjónustu á sinni könnu, sjái um að bjóða upp á heimssendan mat, haldi utan um félagsstarf aldraðra í Sölku og Birtu og einnig bjóði bærinn upp á verkefnið Virk efri ár.