20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Heimboð í Skógarböðin fyrir félagsfólk í EBAK
Félagsfólki í Félagi eldri borgara á Akureyri er boðið án endurgjalds í Skógarböðin í næstu viku eða 27., 28. og 29 nóvember milli kl 10 og 14 samkvæmt tilkynningu sem stjórn EBAK sendi út til félagsfólks í dag.
,, Félagar mæta bara á staðinn og sýna félagsskírteinin. Hafa ber þó í huga að böðin eru opin öðrum einnig, svo ef margir mæta gæti myndast smá bið, en þá er bara hægt að slappa af á Bistro. Félagar eru eindregið hvattir til að þiggja þetta einstaka boð“ segir m.a í áðurnefndri tilkynningu frá stjórn félagsins