Hefur þú skoðun?

Hugmynd að uppbyggingu í kringum Glerártorg     Mynd akureyri.is
Hugmynd að uppbyggingu í kringum Glerártorg Mynd akureyri.is

Hefur þú skoðun á breyttu aðalskipulagi fyrir svæðið í kringum Glerártorg og fyrirhugaðri skipulagningu íbúðalóða syðst í Naustahverfi (Naust III)?

Kíktu á tillögurnar og ræddu málin við starfsfólk skipulagsdeildar Akureyrarbæjar.

Í dag  liggja tvær skipulagstillögur frammi til kynningar í Ráðhúsi Akureyrar frá klukkan 15-18. Íbúar og hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta, kynna sér tillögurnar og fá nánari upplýsingar frá starfsfólki skipulagsdeildar um efni þeirra. Þá er einnig hægt að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum á staðnum.

Skipulagstillögurnar sem um ræðir eru eftirfarandi:

Gleráreyrar – Breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 fyrir svæði Glerártorgs ásamt deiliskipulagsbreytingu fyrir Gleráreyrar 2-10:

Tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 og deiliskipulagi verksmiðjusvæðis á Gleráreyrum vegna áforma um byggingu íbúðarhúsnæðis á lóðinni suðaustan við Glerártorg. Tillögurnar gera ráð fyrir að svæði VÞ6 og nyrsti hluti ÍB4 eru sameinuð og svæðið endurskilgreint sem miðsvæði. Deiliskipulagsbreytingin sem auglýst er samhliða tekur til Gleráreyra 2-10 þar sem Gleráreyrum 10 er bætt við og leyfilegt heildarmagn íbúða hækkað í 100-150 íbúðir.

Drögin eru í kynningu til 12. september nk.

Skipulagslýsinguna má nálgast hér og uppdráttinn hér.

Athugasemdum við breytinguna skal skila í gegnum skipulagsgátt

Naust III – stækkun íbúðarbyggðar:

Drög að breytingu á deiliskipulagi Naust III vegna áforma um að útbúnar verði 7 einbýlishúsalóðir, 2 parhúsalóðir og 5 raðhúsalóðir á svæði sem í dag er deiliskipulagt sem svæði fyrir Minjasafnið.

Drögin eru í kynningu til 12. september nk.

Deiliskipulagsuppdrátt má sjá hér og greinargerð hér.

Athugasemdum við breytinguna skal skila í gegnum skipulagsgátt.

 


Athugasemdir

Nýjast