Háskólinn á Akureyri Endurskoðun jafnréttisáætlunar í fullum gangi
Um þessar mundir stendur yfir endurskoðun á áætlun háskólans um jafna stöðu kynjanna sem gildir frá 2021 til 2024 og jafnréttisráð Háskólans á Akureyri stendur að þeirri vinnu.
Jafnréttisráð HA er öflugt og virkt ráð sem heldur reglulega fundi og tekur fyrir og fylgir eftir erindum starfsfólks og stúdenta. Þá er boðið upp á fræðslu innan skólans ásamt þátttöku í skipulagi Jafnréttisdaga sem haldnir eru árlega. Ráðið hefur starfskraft á sínum snærum, Sæunni Gísladóttur, sérfræðing hjá Rannsóknamiðstöð Háskóla Akureyrar.
Vinna við endurskoðun jafnréttisáætlunar skólans er í fullum gangi og var IRPA ráðgjöf fengin að borðinu þar sem Herdís Sólborg Haraldsdóttir og Sóley Tómasdóttir, sérfræðingar í jafnréttismálum, leiða vinnuna. Vinna við endurskoðun jafnréttisáætlunarinnar hófst í haust og hefur nú þegar farið fram stöðumat jafnréttismála og var könnun um stöðu jafnréttismála send út á allt starfsfólk og stúdenta. Í síðustu viku fóru svo fram tvær vinnustofur, þar af ein á ensku, um jafnréttisáætlunina þar sem þátttaka var afar góð og afurðir verða nýttar í áframhaldandi vinnu.
Ljósmyndari mætti á eina vinnustofuna og náði myndum af áhugasömu starfsfólki og stúdentum við áheyrn á fræðsluerindi og við störf í þágu endurskoðaðrar jafnréttisáætlunar.