Háskólinn á Akureyri aldrei verið vinsælli
Í fyrra var metaðsókn í nám við Háskólann á Akureyri en nú er von á því að það met gerfalli í haust er kemur fram í tilkynningu frá HA. Haustið 2018 er um 50% aukning á heildarfjölda umsókna og nærri tvöföldun í umsóknum um kennaranám. Alls eru 2.074 nemendur við nám í HA í dag, þar af eru 55 % fjarnemar.
Háskólarnir hafa allir verið að rýna í umsóknartölur enda má búast við fjölgun þetta árið þar sem framhaldsskólarnir eru sumir hverjir að útskrifa tvöfaldan árgang; annarsvegar þá sem ljúka stúdentsprófi á 4 árum og hinsvegar þá sem fara styttri leiðina og klára á 3 árum. Á síðustu árum hefur aðsókn í Háskólann á Akureyri aukist til muna og þar leikur sveigjanlega námið stórt hlutverk.
„Með því náum við til alls landsins og nemendur hafa verið mjög ánægðir með aukið aðgengi,“ segir Eyjólfur Guðmundsson rektor HA. Mesti fjarnemafjöldinn er á Selfossi, í Reykjanesbæ og í Hafnarfirði. „Við erum persónulegur skóli og leggjum áherslu á að sinna hverjum nemanda fyrir sig. Það er von okkar að við getum haldið í þá sérstöðu,“ bætir Eyjólfur við.
Aðgangstakmarkanir hafa verið teknar upp í sálfræði og lögreglufræði, auk hjúkrunarfræði, en búast má við frekari aðgangstakmörkunum ef fram heldur sem horfir.
Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Menntamálaráðuneytið ræða nú um hvernig þessari auknu eftirspurn verður mætt. „Það er von háskólaráðs að ríkisstjórnin sjái hér tækifæri til að efla aðgengi að háskólanámi á landinu öllu svo ekki þurfi að grípa til almennra aðgangstakmarkana í nám við Háskólann á Akureyri,“ segir í tilkynningu frá HA.