Gunnar Viðar Þórarinsson efsti maður á lista Lýðræðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Gunnar Viðar  Þórarinsson er efsti maður á lista Lýðræðisflokksins  í Norðausturkjördæmi
Gunnar Viðar Þórarinsson er efsti maður á lista Lýðræðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Gunnar Viðar Þórarinsson, framkvæmdastjóri á Reyðarfirði, skipar efsta sætið á lista Lýðræðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.

Í öðru sæti er Helga Dögg Sverrisdóttir, kennari og sjúkraliði og því þriðja Bergvin Bessason, blikksmiður. Þau koma bæði frá Akureyri.

Von er á að framboðslistar í kjördæminu skýrist einn af öðrum á næstu dögum. Til þessa hefur aðeins Sjálfstæðisflokkurinn birt fullmannaðan lista sinn. Framsóknarflokkur, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Samfylkingin hafa öll boðað fundi á laugardag þar sem tillögur uppstillinganefnda verða bornar fram til samþykktar.

Austurfrétt sagði frá.

Nýjast