27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Greiðslur í fyrsta sinn yfir 200 milljónir króna
mth@vikubladid.is
„Það er auðvitað gleðilegt að staða sjóðsins er góð og að hann geti rétt út hjálparhönd þegar fólk er í neyð,“ segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju. Greiðslur úr Sjúkrasjóði félagsins voru ríflega 210 milljónir króna í fyrra og er þetta í fyrsta sinni sem greitt er meira en 200 milljónir króna á ári úr sjóðnum.
Hækkun á milli ára er um 41 milljón króna en árið á undan námu greiðslur úr sjóðnum um 170 milljónir króna. Greiðslur úr sjóðnum fóru í fyrsta sinn yfir 100 milljónir árið 2014.
Meira en bara faraldurinn
Björn segir að hluti af skýringunni megi rekja til heimsfaraldurs kórónuveirunnar, „en það er meira en bara faraldurinn. Við erum að sjá aukin langtímaveikindi í samfélaginu, meiri en við höfum áður séð. Það þarf eflaust að skoða þetta betur, greina hvað veldur því að æ fleiri þurfa á því að halda að taka langt veikindaleyfi,“ segir hann.
Alls fengu 2.084 félagsmenn greitt úr sjúkrasjóði í fyrra. Dagpeningar vega mest í upphæðinni, þær voru rúmlega 132 milljónir, en dagpeningar geta verið vegna eigin veikinda, alvarlegra veikinda maka eða langveikra og eða alvarlega fatlaðra barna. Aðrar greiðslur úr sjónum voru rúmar 43 milljónir og geta m.a. verið vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, viðtala við sálfræðinga eða geðlækna.