Gert ráð fyrir auknum skuldum í Norðurþingi

Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir 2024 var  samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnar á fimmtudag.  Þriggja ára áætlun 2025-2027 var sömuleiðis borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

Í bókun meirihlutans segir m.a. að fjárhagsáætlun ársins 2024 og þriggja ára áætlun séu lagðar fram í aðstæðum þar sem töluverð óvissa ríki um framvindu efnahags- og kjaramála þar sem verðbólga hjaðnar hægar en spár gerðu ráð fyrir.

„Í áætluninni er lögð áhersla á aðhald í rekstri, eflingu grunnþjónustu og forgangsröðun í þágu yngstu íbúa sveitarfélagsins. Áætlunin stenst lagaleg viðmið um afkomu og fjárhagsstöðu samkvæmt sveitarstjórnarlögum sem er sannarlega góður árangur við framangreindar aðstæður. Skuldahlutfallið samkvæmt ársreikningi 2022 var 122% og samkvæmt framlagðri áætlun fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að skuldahlutfallið verði 136,4% sem skýrist af fyrirhuguðum stórum framkvæmdum á árinu á borð við hjúkrunarheimili og frístundahúsnæði,“ segir í bókuninni.

Þá sé gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 746 m.kr. í samstæðunni sem geri um 13,9% samanborið við 12,3% í áætlun 2023. Einnig er gert er ráð fyrir að laun og launatengd gjöld í hlutfalli af tekjum nemi 52,9% í samstæðu og 58,97% í A-hluta sem er lækkun um 1,2% frá áætlun 2023.

„Auk stórra fjárfestinga í hjúkrunarheimili og frístundahúsnæði verður farið í viðamiklar fjárfestingar í gatnagerð sem síðar mun skila okkur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis en einnig betri þjónustu við fyrirtæki sem kjósa að hafa sína starfsemi í sveitarfélaginu. Þær fjárfestingar eru aðkallandi í samfélagi sem er stækkandi og býr yfir gnægð tækifæra,“ segir í bókun meirihlutans.

Nýjast