Fyrstu upphitunartónleikar Mannfólkið breytst í slím 2025

Föstudaginn 11. apríl fara fram fyrstu upphitunartónleikar ársins fyrir tónlistarhátíðina Mannfólkið breytist í slím í Deiglunni á Akureyri. Viðburðurinn er sögulegur fyrir þær sakir að þetta er samkvæmt öruggum heimildum skipuleggjenda í fyrsta sinn sem erlend dauðarokkshljómsveit kemur fram á Akureyri. Það er sveitin Anime Torment frá Tékklandi sem kemur fram ásamt reykvísku reynsluboltunum í Devine Defilement. Báðar sveitir hafa verið iðnar við tónleikahald víða um Evrópu undanfarin ár og ljóst er að um mikinn feng er að ræða fyrir tónlistarlífið á Akureyri. Þeim til halds og trausts eru sveitirnar Sót og Dream The Name frá Akureyri sem báðar hafa gert það gott í frjórri grasrótarsenu bæjarins undanfarin ár og vakið athygli fyrir líflega sviðsframkomu, frumlegar lagasmíðar og fimlegan hljóðfæraleik.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 20:00. Hljómsveitir koma fram í eftirfarandi röð:

20:00 Sót

20:30 Dream The Name

21:00 Anime Torment

22:00 Dream The Name

Aðalviðburður Mannfólkið breytist í slím fer fram 17. - 19. júlí á Akureyri en hátíðin er kennd við listakollektífið MBS sem hana heldur og hefur gert frá árinu 2018. MBS hefur verið starfandi á Akureyri frá árinu 2010 og á þeim tíma staðið fyrir reglulegu viðburðahaldi auk tónlistarútgáfu sem nú telur 20 plötur. Helsta markmið MBS er að auðga menningarlífið norðan heiða á forsendum svæðisins með áherslu á jaðarkúltúr. Fleiri upphitunartónleikar verða haldnir í aðdraganda hátíðarinnar í júlí og verða þeir auglýstir síðar.

Tónleikarnir nú á föstudaginn eru samstarfsverkefni MBS og Reykjavík Deathfest. Reykjavík Deathfest er hátíð tileinkuð jaðarrokki sem hefur unnið mikilvægt starf í þágu tónlistarmenningar á Íslandi auk þess að flytja reglulega inn fyrsta flokks þungarokkssveitir.

Nýjast