27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Framtíð Mærudaga könnuð
Þann 28. febrúar nk. verður íbúafundur í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík þar sem Mærudagar og framtíð þeirra verða til umræðu. Greint er frá þessu á heimsíðu Norðurþings.
Það var í apríl 1994 sem Mærudagar voru fyrst haldnir á Húsavík sem eins konar uppskeruhátíð lista- og menningarlífs í sumarbyrjun. Árið 1996 var tímasetning hátíðarinnar færð fram í júní og hún tengd við Jónsmessu. Hátíðin hefur orðið umfangsmeiri og fjölsóttari með hverju árinu sem líður og hefur nú öðlast fastan sess síðustu helgina í júlí.
„Við biðjum íbúa og aðra áhugasama að svara stuttri könnun.
Könnunin tekur um 3-4 mínútur. Svörin verða notuð við undirbúning fyrir fundinn og mögulega verða athugasemdir birtar ópersónugreinanlegar á fundinum,“ segir í tilkynningunni.