Framboðslisti Framsóknar í Norðausturkjördæmi lagður fram

Ingibjörg Isaksen leiðir lista Framsóknarmanna í kjördæminu
Ingibjörg Isaksen leiðir lista Framsóknarmanna í kjördæminu

Kjördæmissamband Framsóknar í Norðausturkjördæmi hefur samþykkt framboðslista Framsóknarflokksins í Norðaustur á fjölmennu kjördæmisþingi á Hótel Seli, Mývatnssveit, rétt í þessu.

Í fyrsta sæti er Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, Akureyri

Í öðru sæti er Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður og bóndi, Grýtubakkahreppi

Í þriðja sæti er Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Múlaþingi

Í fjórða sæti er Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, Akureyri

Í fimmta sæti er Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi, Fjarðarbyggð

,,Ég er stolt af því að fá að leiða þennan öfluga lista okkarFramsóknarfólks í kjördæminu. Við byggjum á góðri reynslu, dýrmætum mannauð og breiðri þekkingu á kjördæminu öllu. Við höfum átt í góðu samtali við fólkið í kjördæminu og göngum full tilhlökkunar til samtals við kjósendur, enda eru tækifærin mörg og fjölbreytt. Við viljum halda áfram að efla heilbrigðisþjónustu um land allt, vinna að orkuöryggi, húsnæðismálum og ekki síst að vinna að lækkun vaxta og verðbólgu fyrir fólkið í landinu. Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í flóknu samstarfi á síðustu árum og hlökkum til samtalsins næstu vikna,” sagði Ingibjörg Isaksen oddviti listans

Listi Framsóknar í Norðausturkjördæmi í heild sinni: 

1. Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, Akureyri 
2. Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, Grýtubakkahreppi
3. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Múlaþingi
4. Skúli Bragi Geirdal,​verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar,Akureyri 
5. Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi,Fjarðabyggð
6. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi, Norðurþing
7. Ásdís Helga Bjarnadóttir, yfirverkefnastjóri, Múlaþingi
8. Jón K. Ólafsson, forstöðumaður, Fjallabyggð  
9. Eiður Pétursson, vélfræðingur, Norðurþingi
10. Halldóra Magnúsdóttir, kennari, Eyjafjarðarsveit 
11. Elís Pétur Elísson, framkvæmdastjóri, Fjarðarbyggð
12. Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, starfsmaður á hjúkrunarheimili,  Vopnafirði  
13. Eggert Stefánsson, bóndi, Langanesbyggð
14. Patrycja Maria Reimus, námsráðgjafi, Þingeyjarsveit 
15. Halldóra Hauksdóttir, lögmaður, Akureyri 
16. Monika Margrét Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri,Dalvíkurbyggð 
17. Snæbjörn Sigurðson, verkefnastjóri,  Akureyri 
18. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, ritari, Múlaþingi 
19. Egill Olgeirsson, ellilífeyrisþegi, Norðurþingi
20. Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Fjarðarbyggð

 

Nýjast