Frábær sigur Þór/KA á Íslandsmeisturum Vals

Leikmenn Þór/KA fagna sigurmarki Margrétar Árnadóttur.    Mynd Páll Jóhannesson
Leikmenn Þór/KA fagna sigurmarki Margrétar Árnadóttur. Mynd Páll Jóhannesson

Þór/KA tók  á móti Valskonum í annar umferð Bestu deildar í Boganum i kvöld.  Fyrirfram var búist við að róðurinn gæti orðið þungur fyrir heimastúlkur en þær voru ekki mikið að velta þvi fyrir sér og með ótrúlegum vilja, og óbilandi trú á verkefnið lögðu þær firnasterkt Valslið 2-1.

Sandra

Sandra María Jessen snéri aftur i svarbláa búningin og hún kom okkar liði yfir strax á 6 min. og þar við stóð fram á 64 mín þegar Elín Metta jafnaði fyrir Val.  Einhverjir óttuðust að nú yrði brekkan brött en  lið Þór/KA hélt sínu striki, þær vörðust vel og  Harpa í markinu var öryggið uppmálað.  Það var svo Margrét Árnadóttir sem kom Þór /KA aftur i forustuna þegar hún náði frákastinu af góðu skoti hennar sem Sandra i marki Vals hálfvarði.  

Seinasta korterið sóttu Valskonur stíft en ekki var meira skorað og  frábær sigur Þórs/KA staðreynd.

Nýjast