Forsetakosningar 2024 almennar upplýsingar

Íslendingar kjósa sér forseta á morgun
Íslendingar kjósa sér forseta á morgun

Eins og fólki er væntanlega ljóst fara forsetakosningar fram á morgun laugardaginn 1. Júní.  Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur ekki seinna en  klukkan 22:00.

Kjörstaðir í Akureyrarbæ eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla í Grímsey. Akureyrarbæ verður skipt í 12 kjördeildir, 10 á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey.

Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 24. apríl sl. og eru kjósendur beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa. Hægt er að fletta upp í kjörskrá á vef Þjóðskrár á slóðinni: www.kosning.is

Kjósendum í Hrísey og Grímsey er bent á að kjörstað kann að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 14:00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða að lágmarki opnir til kl. 14:00 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.

Kjósendum ber að sýna persónuskilríki eða önnur kennivottorð á kjörfundi.

Á kjördag hefur kjörstjórn aðsetur á bókasafni VMA. Netfang kjörstjórnar er kjorstjorn@akureyri.is og símanúmer er 895-4711. 

Kjörstjórn vekur athygli á því að þeir sem eru á kjörskrá utan Akureyrar geta kosið utankjörfundar að Geislagötu 5 við Bankastíg (gamla Arionbankahúsið) til kl. 17:00 á kjördag.

Heimild  www.akureyri.is


Athugasemdir

Nýjast