27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Fjölbreytt verkefni styrkt í Grímsey
Frumkvæðissjóður Brothættra byggða í byggðaþróunarverkefninu Glæðum Grímsey úthlutaði nýlega rúmlega 16 milljónum króna til tólf verkefna sem sóttu um stuðning til sjóðsins. Að þessu sinni var um að ræða tvöfalda fjárhæð til úthlutunar, þ.e. fyrir úthlutunarárin 2021 og 2022. Heildarkostnaður við verkefnin er um 55.5 milljónir króna, en sótt var um styrki að upphæð alls 23.3 m.kr. Þetta er síðasta úthlutun úr sjóðnum í verkefninu GLG, en verkefninu lýkur í lok árs 2022.
Á vef Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) er að finna bækling um nánari útlistun á þeim verkefnum sem hlutu styrk
Eftifarandi verkefni hlutu stuðning:
Nafn umsækjanda: |
Nafn verkefnis: |
Laufey Haraldsdóttir/Hólaskóli |
Ábyrg eyjaferðaþjónusta í Grímsey |
Kvenfélagið Baugur |
Starfs- og vinnuaðstaða |
Hallgerður Gunnarsdóttir |
Menntabúðir við Heimskautsbaug |
Hellugjögur ehf |
Menningarmiðstöð - hönnun og uppbygging |
Einar Guðmann |
Photographing Grímsey |
Vistorka ehf |
Orkuskipti í Grímsey - Upplýsingar og fræðsla |
Muninn ehf |
Bætt þjónusta við ferðamenn í Grímsey |
Mayflor Perez Cajes |
Grímsey Design |
Gyða Henningsdóttir |
Vörulína fyrir Grímsey |
Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnas. |
Hreinsunarátak |
Básavík ehf |
Gólfefnaskipti |
Samtals úthlutað 16.430.000 kr.
Fjöldi og metnaður umsókna sem bárust í Frumkvæðissjóðinn endurspeglar áhuga fyrirtækja, stofnana og einstaklinga á að þróa og efla atvinnulíf og samfélag í Grímsey.