Fjármögnun lokið á nýrri landeldisstöð Samherja

Samherji fiskeldi ehf., dótturfélag Samherja hf., hefur lokið fjármögnun fyrsta áfanga Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar við Reykjanesvirkjun, með útgáfu nýs hlutafjár og sambankaláni. Fjármögnun fyrsta áfanga nemur 235 milljónum evra, jafnvirði 34 milljarða króna. Eitt hundrað ný störf verða til í stöðinni og annar eins fjöldi afleiddra starfa. Þetta kemur fram á vefsíðu Samherja.
„Það er afar ánægjulegt að fjármögnun nýju landeldisstöðvarinnar, Eldisgarðs, sé í höfn. Innlendir og erlendir bankar og fjárfestar sýna okkur mikið traust með sinni þátttöku. Við settum okkur skýrt markmið strax í upphafi að fá utanaðkomandi fjárfesta að þessu verkefni og það hefur nú náðst. Við væntum þess að landeldi á Íslandi skili umtalsverðri hagsæld fyrir þjóðarbúið, rétt eins og íslenskur sjávarútvegur hefur gert undanfarna áratugi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja og stjórnarformaður Samherja fiskeldis.
Góður árangur í Öxarfirði skipti sköpum
„Eldisgarður byggir á reynslu okkar af landeldi í Öxarfirði. Frá árinu 2023 höfum við fjárfest í stöðinni í Öxarfirði fyrir rúmlega fjóra milljarða króna. Sú fjárfesting fólst í stækkun og innleiðingu á nýrri tækni sem verður notuð í Eldisgarði. Árangurinn af þessum breytingum hefur ekki látið á sér standa og styrkir væntingar okkar um rekstur nýju landeldisstöðvarinnar. Öflugt teymi hefur í langan tíma unnið að undirbúningi þessa stóra og fjárfreka verkefnis og lagt grunninn að uppbyggingu landeldis í fremstu röð á heimsvísu. Ég er afskaplega stoltur af starfsfólki Samherja á þessum tímamótum og við teljum okkur vel í stakk búin að takast á við margfalt stærra landeldi,“ segir Þorsteinn Már.
Jarðvegsframkvæmdir við Eldisgarð hófust í október 2024. Landeldisstöðin verður staðsett í auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun.
Stöðin byggð í þremur áföngum
Jarðvegsframkvæmdir við Eldisgarð hófust í október 2024. Landeldisstöðin verður staðsett í auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun með aðgang að 100% endurnýjanlegri orku frá virkjuninni. Stöðin verður byggð í þremur áföngum. Eftir fyrsta áfanga mun hún framleiða 10.000 tonn af slægðum laxi og mun fullbyggð ná framleiðsluafköstum upp á 30.000 tonn á ári. Í framleiðslunni munu einnig falla til hliðarafurðir sem til stendur að nýta til frekari verðmætasköpunar innan auðlindagarðs HS Orku.
Mikill áhugi á þátttöku í verkefninu
Fjármögnun fyrsta áfanga Eldisgarðs er tvíþætt. Hún felst annars vegar í útgáfu nýs hlutafjár í Samherja fiskeldi ehf. upp á 125 milljónir evra og hins vegar sambankaláni upp á 110 milljónir evra. Samherji hf., sem er í dag eigandi 99% hlutafjár í Samherja fiskeldi, mun leggja til um helming hlutafjáraukningarinnar á móti fjárfestingu frá hópi fjárfesta. Þar er um að ræða AF3 slhf. (framtakssjóð í rekstri Alfa Framtaks ehf.), CCap (hollenskt fjárfestingarfélag í fjölskyldueigu) og Snæból ehf. (íslenskt fjárfestingarfélag í fjölskyldueigu). Sambankalán uppá 110 milljónir evra er leitt af Íslandsbanka með þátttöku Landsbankans, Nordea og Eksfin – Eksportfinansiering i Noregi.
Vegna mikils áhuga á verkefninu var ákveðið að auka umfang hlutafjárútgáfunnar og leggja þá grunn að næsta áfanga í uppbyggingu landeldisstöðvarinnar. Bæði innlendir og erlendir fjárfestar taka þátt í þessari stækkun útgáfunnar og er ráðgert að henni ljúki fyrir lok maí næstkomandi.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og Arctic Securities í Osló voru ráðgjafar Samherja fiskeldis í fjármögnunarferlinu.
Byggt á farsælli áratuga reynslu af landeldi
Jarðvegsframkvæmdir við Eldisgarð hófust í október 2024. Landeldisstöðin verður staðsett í auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun.Samherji fiskeldi ehf. hefur stundað landeldi á bleikju og laxi með góðum árangri tvo áratugi. Fyrirtækið er orðið leiðandi í landeldi og er í dag stærsti bleikjuframleiðandi í heimi með um 30% markaðshlutdeild í bleikju. Frá árinu 2002 hefur Samherji fiskeldi framleitt meira en 60.000 slægð tonn af laxi og bleikju. Á síðustu árum hefur verið ráðist í umfangsmikla stækkun á núverandi landeldisstöðvum félagsins og hafa þær í dag árlega framleiðslugetu upp á 6.000 slægð tonn.
Eldisgarður hefur verið í þróun frá árinu 2020 og var stöðin hönnuð með það markmið að einfalda rekstur og tækjabúnað í stöðinni en styðjast við sannreynda og áreiðanlega tækni. Rekstrarhagkvæmni verður kjarninn í starfsemi stöðvarinnar þar sem ábyrg orkunýting og orkusparnaður verða höfð að leiðarljósi. Eldisgarður mun nýta jarðsjó og svokallaðan ylsjó, sem er affall frá kælingu Reykjanesvirkjunar, sem í dag rennur að hluta ónýttur til sjávar.
Um 100 manns koma til með að starfa í Eldisgarði og verður meirihluti þeirra þekkingarstörf, þar sem rík áhersla verður lögð á sjálfvirkni í stöðinni, auk þess sem stöðin nýtur fulltingis þeirra 120 starfsmanna og sérfræðinga í sem dag starfa hjá Samherja fiskeldi. Eldisgarður mun samanstanda af seiðastöð, áframeldisbyggingu með þremur áframeldisstöðvum og sláturhúsi.
Verðmætasköpun með umhverfisvænni framleiðslu
„Ég er afar stoltur af okkar starfsfólki sem hefur gert þennan árangur mögulegan með sinni reynslu og sérfræðiþekkingu. Samtímis er ég hrærður yfir þeim áhuga sem fjárfestar sýna Eldisgarði. Um er að ræða risavaxið verkefni sem mun hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið á Reykjanesi. Við erum hreykin af því að skapa ný þekkingarstörf á svæðinu með umhverfisvænni framleiðslu á hágæða próteini,“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis.
„Landeldi er ört stækkandi og er að verða mikilvæg atvinnugrein fyrir íslenskt efnahagslíf. Með því að nýta endurnýjanlega orkugjafa og byggja á áratuga reynslu í sjávarútvegi er greinin í sterkri stöðu til vaxtar. Hjá Alfa Framtak erum við stolt að styðja við uppbyggingu þessarar mikilvægu atvinnugreinar hérlendis og með fjárfestingu í Samherja fiskeldi njótum við góðs af rótgróinni þekkingu og reynslu félagsins af veiðum, vinnslu og fiskeldi. Það er okkur afar ánægjulegt að fjárfesta í þessu verkefni og við hlökkum til að eiga náið samstarf við stjórnendur og aðra hluthafa Samherja fiskeldis,“ segir Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtak ehf.
CCap í Hollandi, sem kemur nú inn í hluthafahóp Samherja fiskeldis, hefur áður starfað með Samherja að fjölbreyttum verkefnum.
„Við höfum unnið með stjórnendum Samherja um langt árabil á sviði útgerðar og fiskvinnslu víða um heim. Eldisgarður er spennandi tækifæri til að útvíkka það samstarf og við tökum þátt í þessari miklu uppbyggingu fullir tilhlökkunar,“ segja Jan van der Plas og Anton van der Plas, stofnendur CCap.
„Það er heiður fyrir Íslandsbanka að leiða fjármögnun Eldisgarðs fyrir Samherja fiskeldi. Með sambankaláninu og hlutafjáraukningu frá traustum samstarfsaðilum hefur styrkum stoðum verið skotið undir þetta metnaðarfulla verkefni. Það fellur vel að stefnu bankans um að styðja við langtímaverðmætasköpun í íslensku atvinnulífi,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
Stefnt er að því að taka stöðina í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2027.