Fjármálaþjónusta framtíðarinnar - 30. janúar | SFF

Samtök fyrirtækja i fjármálaþjónustu standa fyrir ráðstefnu ráðstefnu í Hörpu á morgn fimmtudag, str…
Samtök fyrirtækja i fjármálaþjónustu standa fyrir ráðstefnu ráðstefnu í Hörpu á morgn fimmtudag, streymt verður beint frá ráðstefnuni

Beint streymi verður frá ráðstefnu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Fjártækniklasanum, sem haldin verður í Hörpu, á morgun fimmtudag 30. janúar, frá 13.30-16.00.

Sérfræðingar úr ólíkum áttum munu horfa til framtíðar og segja frá sinni sýn á því hvernig fjármálaþjónustu framtíðarinnar muni líta út og hvaða tækifæri skapa breytingarnar fyrir okkur á komandi árum?

Tæknin aukið þjónustu og lækkað kostnað

“Tækninni hefur fleygt fram á ýmsum sviðum undanfarin ár, og er fjármálaþjónustu sannarlega ekki undanskilin þar. Tala mætti um byltingu sem enn sér ekki fyrir endann ár. Við sem komin erum yfir miðjan aldur munum vel eftir leit að bílastæðum fyrir framan bankaútibú, biðröð um mánaðarmót og fylla út eyðublöð í tví- eða jafnvel þríriti. Nú heyrir það til undantekninga að fara í biðröð í bankaútibúi, við afgreiðum okkur sjálf í tölvu eða símum. Þannig hefur allir hraði í þjónustu aukist og kostnaður lækkað verulega neytendum til hagsbóta.” Segir Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri SFF.

Samkeppnin hefur aukist vegna tilkomu tækninnar

Fjármál geta vissulega verið flókin en tæknin hefur auðveldað fólki að bera saman þjónustu og nú er hægt að færa sig á milli fyrirtækja með einföldum hætti í símanum. Þetta hefur aukið samkeppni og hreyfanleika neytenda. Hreyfanleiki neytenda hefur verið mældur hæstur á Íslandi miðað við samanburðarlönd en það er einn helsti mælikvarði á samkeppni.

Auðveldað nýjum fyrirtækjum að koma inn a markaði

Tæknin hefur einnig auðveldað nýjum fyrirtækjum að koma inn á markað bæði hér á landi og erlendis. Þá hafa reglur verið settar um svokallað “open banking” sem mun auðvelda fyrirtækjum enn frekar að koma sér fyrir. Lagareglur sem hafa komið frá Evrópu t.d. PSDII sem tóku gildi 2021 hjálpað til og ýtt undir þróunina. „Þetta mun leiða til þess að neytendur fái betri yfirsýn og getu til að bera saman þjónustuaðila. Við þurfum þó einnig að gæta varúðar, sérstaklega þegar kemur að svikum og netöryggi.“ segir Heiðrún

Fjármálafyrirtæki taka miklum breytingum

Samhliða þessum breytingum hafa orðið breytingar á bakgrunni starfsmanna, bæði menntun og reynslu, og eru upplýsingatækni orðin fyrirferðameiri. “Mannfrekustu störfunum fer fækkandi og tækni tekur við, það hefur verið þróunin undanfarin ár. Það hefur leitt til hins jákvæða að viðskiptavinir fá betri yfirsýn og upplýsingar, sem gerir þeim auðveldara að taka upplýstar ákvarðanir,“ segir hún .

Fjártækni, ný undirgrein orðið til.

Heiðrún bendir á að íslensk fyrirtæki hafa náð góðum og eftirtektarverðum árangri. Þau skapa ný störf og fleiri tækifæri en áður hefur verið séð. Gervigreindin hefur opnað möguleika bæði við að bæta þjónustu og skapa hagræði. Við höfum ekki enn séð nema lítið brot af þeirri þróun sem verður. “Mikilvægt að Ísland fylgist áfram vel með alþjóðlegri þróun og nýti tækifærin. Við höfum burði til að standa framarlega í þessum geira, en það krefst skýrra reglna, nýsköpunar og samvinnu.“ segir Heiðrún að lokum.

Að sögn Heiðrúnar er markmið ráðstefnunnar að kalla til aðila úr ólikum áttum að ræða hvar tækifærin i þessari þróun geta legið fyrir Ísland á næstu árum. Heiðrún mun setja ráðstefnuna en Gunnlaugur Jónsson framkvæmdastjóri Fjártækniklasans mun stýra fundinum og pallborðsumræðum.

Fyrirlesarar verða:

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.

Hannes Pétursson, tæknistjóri Jiko Technologies.

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP.

Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID.

Jónína Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Blikk.

Kristján Ingi Mikaelsson, stjórnarformaður Rafmyntaráðs og meðstjórnandi Visku Digital Assets.

Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna.

Pallborðsumræður:

Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka.

Sigríður Dís Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Greiðsluveitunnar.

‍‍Viðburðurinn er öllum opinn en skráning nauðsynleg.

Frá þessu segir í tilkynningu frá SFF

Nýjast