Fataslá sett upp í MA - Kaupum sjaldnar, kaupum notað

Fatasláin er framan við bókasafnið og öllum er frjálst að bæta á eða taka af     Mynd Vefur MA
Fatasláin er framan við bókasafnið og öllum er frjálst að bæta á eða taka af Mynd Vefur MA

Nú má finna fataskiptislá framan við bókasafn Menntaskólans á Akureyri. Fólki er frjálst að koma með fatnað og/eða taka af sláni eftir því hvað hentar hverju sinni. Í tilkynningu frá umhverfisnefnd skólas  segir að textíliðnaðurinn sé einn sá umfangsmesti í heimi og að honum fylgi gríðarleg mengun og umhverfisspjöll.

Frá árinu 2000 hefur framleiðsla á fötum nær tvöfaldast á sama tíma og þau enda fyrr í ruslinu. Aukinni áherslu framleiðenda og kaupenda á svokallaðri skynditísku (Fast Fashion) er að mestu leyti um að kenna. „Umhverfisnefnd MA hvetur fólk til að leggja sitt af mörkum til að sporna við frekari sóun: Verum partur af lausninni en ekki vandanum! Kaupum minna, kaupum notað, notum lengur, gerum við og endurvinnum meira,“ segir á vef MA.

 


Athugasemdir

Nýjast