27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Byggðar um 200 íbúðir með um 500 íbúum
mth@vikubladid.is
„Við lítum á Ölduhverfi sem mikilvæga viðbót við þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Hrafnagilshverfi enda rímar það mjög vel við stefnu sveitarfélagsins að byggt sé upp í og við þéttbýliskjarnann,“ segir Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit. Skrifað hefur verið undir samning um uppbyggingu íbúðahverfis, Ölduhverfis, í landi Kropps í Eyjafjarðarsveit. Nýja hverfið mun verða hluti af þéttbýliskjarnanum við Hrafnagil þar sem er að finna alla helstu þjónustu sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttahús og skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
Sveitarfélagið er sjálft að hefja viðamikla uppbyggingu í innviðum sínum með byggingu á nýjum leikskóla og metnaðarfullum endurbótum á Hrafnagilsskóla, bókasafni sveitarfélagsins og íþróttaaðstöðu fyrir almenning. „Það er því mikilvægt að sjá fram í tímann hvernig byggðin þróast og er Ölduhverfi stór partur af því,“ segir í tilkynningu vegna undirritunarinnar.
Um 500 íbúar í fullbyggðu hverfi
Finnur Yngvi segir að Ölduhverfi muni auka breidd þeirra búsetukosta sem í boði eru í sveitarfélaginu „en íbúðirnar virðast vera fjölbreyttar og henta mjög vel hvort sem er fyrir þá sem eru að byrja að búa, fjölskyldufólk eða eldri íbúa sveitarfélagsins,“ segir hann. Í fullbúnu hverfi er verða um 200 íbúðir og segir sveitarstjóri að gera megi ráð fyrir að allt að 500 manns muni búa þar sé mið tekið af meðalfjölda íbúa í húsnæði sveitarfélagsins nú.“
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við Ölduhverfi hefjist síðari hluta ársins 2022. Uppbyggingin verður í einkaframkvæmd, þar er átt við uppbyggingu og lagningu innviða, s.s. gatna- og stígagerð og fráveitukerfi. Að þeirri uppbyggingu lokinni mun Eyjafjarðarsveit taka við og eignast opin svæði, lóðir, götur, gangstíga og aðra þá innviði sem tilheyra rekstri sveitarfélaga og annast viðhald þeirra til frambúðar.
Hverfið er umlukið skógi
Í nýja hverfinu er gert ráð fyrir lágri byggð eins til tveggja hæða húsa, einbýlis-, par- og ráðhúsum ásamt litlum sex til átta íbúða fjölbýlishúsa. Byggðin mun falla vel að landslaginu og landhalli á svæðinu verður nýttur til að allar íbúðir hverfisins njóti mikils útsýnis.
Góð aðstaða verður í hverfinu fyrir þá sem kjósa rólegt og fallegt umhverfi og njóta um leið góðrar aðstöðu til útivistar. Hverfið er að mestu umlukið skógi, en á undanförnum árum hefur verið staðið fyrir umfangsmikilli skógrækt á svæðinu á rúmlega 100 hektara svæði. Stórt opið svæði er í miðju hverfinu sem einnig tengist fjölbreyttum skógarstígum, vinsælum hjóla- og göngustíg milli Akureyrar og Hrafnagils.