27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Borgarhólsskóli á Húsavík varð í dag símalaus skóli
Í dag varð Borgarhólsskóli á Húsavík símalaus skóli. Tilkynnt var um þetta á vef skólans. „Breyttir tímar kalla á breytta nálgun og nú hefur verið tekin sú ákvörðun að leggja símum nemenda í skólanum til hliðar. Frá og með deginum í dag er Borgarhólsskóli símalaus skóli. Nemendum í fyrsta til og með tíunda bekk verður óheimilt að nota farsíma á skólatíma. Við viljum búa til þá menningu að hann sé ekki uppi við. Verkefnið mun taka tíma en það er mikilvægt að muna að síminn er besti vinur sumra nemenda og margir eru háðir notkun hans,“ segir í tilkynningunni, sem sjá má hér.
Ástæðan fyrir símabanni nemenda á skólatóma er sögð vera þá að síminn bæti litlu við hvað varðar nám nemenda og sé því óþarfur.
„Viðfangsefnið er símalaus skóli í samstarfi við nemendur. Um leið þurfum við að styðja við nemendur félagslega, kenna þeim tilveruna án símans og vera þeim fyrirmynd. Markmiðið er að auka samskipti nemenda án síma, stuðla að streituminna umhverfi og efla einbeitingu. Ef foreldrar þurfa að ná sambandi við börnin sín á skólatíma á að gera það í gegnum skrifstofu skólans. Dagurinn í dag gekk reglulega vel hjá nemendum,“ segir í tilkynningunni.
Þá er greint frá því að ef síminn truflar nemanda á skólatíma verði honum boðið val um að afhenda starfsmanni símann eða honum sé fylgt til ritara þar sem nemandinn afhendir tækið til geymslu. Kjósi nemandi að hafna þessu er hringt í foreldri sem sækir tækið í skólann.
„Við óskum eftir að foreldrar ræði þessa breytingu og framhaldið við nemendur enda samvinnuverkefni milli heimilis og skóla. Það er okkar trú að þetta sé heillaskref fyrir nemendur sjálfa,“ segir í niðurlagi tilkynningarinnar á vef Borgarhólsskóla.