Benóný Valur leiðir lista Samfylkingar í Norðurþingi
S - listi Samfylkingarinnar og annars félaghyggjufólks var samþykktur fyrr í kvöld vegna komandi sveitarstjórnarkosninga í Norðurþingi.
Benóný Valur Jakobsson núverandi oddviti mun leiða listann.
Rebekka Ásgeirsdóttir skipar annað sæti og Reynir Ingi Reinhardsson það þriðja.
„Stoltur, auðmjúkur og gríðarlega spenntur yfir því að fá tækifæri til að leiða þennan frábæra lista sem er samsettur af frábæru og frjóu fólki sem getur og mun gera Norðurþing að enn betra sveitarfélagi,“ skrifar Benóný á Fjasbókarsíðu sína.
Listann í heild sinni má sjá hér að neðan: