6. nóvember - 13. nóvember - Tbl 45
Bærinn fellst ekki á þessa skyndilegu beiðni
mth@vikubladid.is
Bæjarráð Akureyrar getur ekki fallist á skyndilega beiðni ríkisins um að Akureyrarbær fjármagni bílakjallara undir nýrri heilsugæslustöð sem til stendur að reisa við tjaldstæðisreitinn, út við Þingvallastræti. Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir sendi bænum erindi þar sem fram kemur að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki fjármagn til að byggja bílakjallara undir heilsugæslu suður og er lagt til að bærinn taki þann kostnað að sér verði ekki fallið frá þeirri kröfu að hafa bílakjallara undir heilsugæslustöðinni.
Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra hefur kynnt Framkvæmdasýslu-Ríkiseignum þessa niðurstöðu og haldinn hefur verið einn fundur um málið. Hún segir að á þessu stigi sé ekki meira um málið að segja.
Skipulagsráð hafnaði fyrir nokkru ósk Framkvændasýlsunnar-Ríkiseigna um að breyta skipulagi lóðarinnar í þá átt að ekki yrði gert ráð fyrir bílakjallara heldur yrði bílastæðum ofanjarðar fjölgað og hefur bæjarráð tekið undir það.
Bílakjallari forsenda fyrir að byggja á þessum stað
Lýsti skipulagsráð yfir vonbrigðum með að ekki væri vilji fyrir því að gera bílakjallarann undir heilsugæslunni en við það hefði verið miðað frá því skipulagsvinna hófst á svæðinu veturinn 2020 til 2021. Bílakjallari væri forsenda fyrir því að heilsugæslan verði byggð á þessu svæði. Hvatti ráðið eindregið til þess að gert yrði ráð fyrir umræddum kostnaði við uppbyggingu heilsugæslunnar svo ekki verði tafir á framvindu verkefnisins enda ótækt að heilsugæslan búi lengur við núverandi húsnæðiskost.
Myndtexti:
Skipulagsráð segir að bílakjallari sé forsenda fyrir því að heilsugæslan verði byggð á þessu svæði. Mynd/MÞÞ