Ásthildur Sturludóttir í 10 bestu

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.

Ásthildur Sturludóttir er viðmælandi Ásgeirs Ólafs í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu með Ásgeiri Ólafs.

Ásthildur hefur verið bæjarstjóri á Akureyri sl. 4 árin.  Í þættinum segir hún frá því þegar hún var lítil stelpa og vissi hvað hún ætlaði að verða þegar hún yrði stór. Bæjarstjóri, sem, henni hefur tekist að verða í tveimur bæjarfélögum. En hún bjó á Petreksfirði, var bæjarstjóri þar, tók þátt í að koma Hörpunni á laggirnar, tók allan sinn pening sem hún átti úr bankanum sínum í hruninu með tár í augunum. Hún elskar að elda, bjó í Connecticut og hitti þar Ralph Lauren og var sveitt. 

Hún segir frá því þegar hún eignaðist dóttur sína Lilju Sigríði árið 2016 eftir að þau hjónin höfðu reynt lengi að eignast barn og vörðu tíma á Vökudeild. Þar mátti litlu muna að illa færi og naumt stóð það um tíma með Ásthildi vegna alvarlegrar meðgöngueitrunar.

Einlægt viðtal við bæjarstjórann á Akureyri.

 

Nýjast