Líneik Anna hættir á þingi

Líneik Anna hættir á þingi                                Mynd  Austurfrétt
Líneik Anna hættir á þingi Mynd Austurfrétt

Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi Alþingiskosningum.
Þetta staðfesti Líneik Anna í samtali við vef Austurfréttar í dag. Líneik Anna var fyrst kjörin á þing fyrir flokkinn í kosningunum 2013, féll af þingi í kosningunum 2016 en var aftur kjörin 2017.
Aðspurð segir hún að það hafi komið henni á óvart að ríkisstjórnarsamstarfinu skyldi vera slitið á sunnudag. Hún hafi talið að enn væru fyrir hendi „verk sem hægt væri að vinna lengur saman á ábyrgan hátt.“  

Hún kveðst bjartsýn á möguleika Framsóknarflokksins í kjördæminu í kosningunum 30. nóvember. Nú sé verkefnið að setja saman framboðslista og byggja á þeim árangri sem náðst hefur á kjörtímabilinu.

 

 

Nýjast