Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir sýninguna ,,Strengir / Strings” í Mjólkurbúðinni

Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir sýnir í Mjólkurbúðinni - Sal Myndlistarfélagsins
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir sýnir í Mjólkurbúðinni - Sal Myndlistarfélagsins

Fimmtudaginn 26. september kl. 17-19 opnar Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir sýninguna “Strengir / Strings” í Mjólkurbúðinni - Sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 12 á Akureyri. Sýningin stendur til 8. október og er opið eftirfarandi daga:

Helgin 27.- 29. sept 12-17

Fimmtud. 3. okt 11-17

Helgin 4.- 6. okt 12-17 

„Strengir/Strings“ er sjötta einkasýning Önnu Álfheiðar og inniheldur um 11 málverk, sem unnin hafa verið á þessu ári, 2024. Verkin eru óhlutbundin og í geometrískum anda, unnin í þrívíðu formi. Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir (f. 1977) útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009 og M.A. gráðu í listkennslu frá sama skóla árið 2020.

Síðastliðin ár hefur Anna verið að vinna með óhlutbundin þrívíð form málverksins með strangflatalist sem hún nálgast á ljóðrænan hátt. Viðfangsefni verka Önnu er að leitast við að skapa samtal milli áhorfandans og myndrammans í gegnum skynjun hans og upplifun á margþættum myndfletinum þar sem litanotkun, formgerð og endurtekning spila stór hlutverk í samspili við staðsetningu, tíma og rúm.

Samhliða hefur Anna undanfarin ár leitast við að kanna mörkin milli listmiðla í verkum sínum, þ.e.a.s. milli málverka, textíls og skúlptúrs/lágmynda.

Nýjast