Akureyri datt út eftir trylltar lokamínútur
Akureyri og FH mættust í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik, Coca Cola bikarsins svo kallaða, í KA-heimilinu á Akureyri í kvöld.
Heimamenn byrjuðu betur og voru með frumkvæðið fyrstu tíu mínúturnar. FH jafnaði á 11. mínútu og seig fram úr eftir það. Hálfleikstölur voru 14:17 gestunum í vil.
FH-ingar héldu dampi í síðari hálfleik og voru með örugga forystu nánast allan leikinn. Akureyringar neituðu þó að gefast upp og minkuðu munin niður í eitt mark 26:27 og þannig var staðan þegar um 50 sekúndur voru eftir og Akureyri lagði af stað í sókn og áttu þess kost að jafna. Sóknin rann hins vegar út í sandinn og FH fer áfram í átta liða úrslit. Lokatölur 26:27 fyrir FH.
Markahæstur heimamanna var Patrekur Stefánsson sem er nýkominn inn í liðið aftur eftir meiðsli, hann skoraði 7 mörk.