Áhöfn Snæfells safnaði nærri hálfri milljón króna í Mottumars
Áhöfn Snæfells EA-310, frystitogara Samherja, tók þátt í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands. Í upphafi var stefnan sett á að safna 250 þúsund krónum en niðurstaðan varð 471 þúsund krónur.
Snæfell kom til löndunar á Akureyri á mánudaginn. Skömmu fyrir upphaf veiðiferðarinnar afhenti Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri áhöfninni Mottumarssokka en félagið færði öllum karlmönnum sem starfa hjá Samherja Mottumarssokka og styrkti þannig Krabbameinsfélagið.
Þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein
Gylfi Víðisson undirstýrimaður á Snæfelli segir að fljótlega hafi komið fram hugmynd um að taka þátt í skeggkeppni Mottumars og safna fyrir góðu málefni.
„Það var í raun Hafþór Björnsson háseti sem leiddi þetta og hvatti aðra í áhöfninni til dáða. Staðreyndin er að þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni, þannig að þetta stendur okkur í raun nærri og áhöfnin var því sammála um að taka virkan þátt í Mottumars.“
Langt umfram væntingar
Hafþór Björnsson segir að söfnunin hafi farið tiltölulega rólega af stað en hafi tekið kipp er leið á veiðiferðina.
Snæfell EA 310 í höfn á Akureyri
Áhöfnin stolt – margir með mottu
Þeir félagar segja að flestir í áhöfninni hafi safnað skeggi í túrnum.
„Já, já, þetta skapaði ákveðna stemningu og Mottumars-sokkarnir komu að góðum notum. Margir okkar skörtuðu flottum og metnaðarfullum mottum í lok veiðiferðarinnar og það verður spennandi að sjá hversu margar verða látnar fjúka í landlegunni. Þetta var skemmtilegt verkefni og jafnframt gefandi. Til þess að drífa svona söfnun áfram þarf helst að vera góð og jákvæð stemning og
Á föstudaginn mun Krabbameinsfélagið veita verðlaun til þeirrra liða sem tóku þátt í söfunarátakinu.
Frá þessu sagði fyrst á heimasíðu Samherja