Vaya Con Dios heiðruð á Græna Hattinum

Mynd: Agnes H. Skúladóttir
Mynd: Agnes H. Skúladóttir

Guðrún Harpa Örvarsdóttir, Valmar Väljaots, Pétur Ingólfsson, Kristján Edelstein og Valgarður Óli Ómarsson taka upp þráðinn frá því í fyrra sumar og endurtaka leikinn á Græna Hattinum annað kvöld.

Þau hafa ákveðið að halda aðra tónleika til heiðurs hinni frábæru belgísku hljómsveit Vaya Con Dios.

Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og mega tónleikagestir eiga von á góðri blöndu tónlistarstíla svo sem jazz, blues, softrock, latin, soul og gypsy. 

Flutt verður brot af því besta sem hljómsveitin gaf út  og má þá m.a. nefna lög á borð við Don´t cry for Louie, Nah neh nah, Johnny og Puerto Rico svo eitthvað sé nefnt.

 

Nýjast