Þrándur Þórarinsson í Hofi
Myndlistarmaðurinn Þrándur Þórarinsson opnar myndlistarsýningu sína í Menningarhúsinu Hofi, laugardaginn 16. febrúar. Þrándur fæddist á Akureyri árið 1978, stundaði nám um tíma í Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólanum á Akureyri og var í læri hjá Odd Nerdrum.
Þrándur sækir meðal annars innblástur í íslenskar þjóðsögur og fornan sagnaarf og hefur gjarnan verið kallaður þjóðlegasti myndlistamaður samtímans. Opnun Þrándar hefst klukkan 16 og eru allir velkomnir. Sýningin í Hofi stendur til 7. apríl.