20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Fyrstu tónleikar Sumartónleika í Akureyrarkirkju 2018 fara fram á morgun, sunnudaginn 1. júlí kl. 17:00. Tónleikaröðin hefur sitt 32. starfsár með tónleikum fyrir alla fjölskylduna þar sem Dúó Stemma kemur fram.
Dúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari og munu þau fagnar sumrinu með íslenskum þjóðvísum, þulum, ljóðum og hljóðum tengdum sumrinu með dagskrá undir yfirskriftinni Ó blessuð vertu sumarsól. Einnig munu þau flytja skemmtilega hljóðsögu með hljóðfærunum sínum. Leikið verður á ýmis hefbundin hljóðfæri s.s víólu og marimbu en líka óhefðbundin svo sem hrossakjálka, íslenska steina og barnaleikföng.
Herdís Anna Jónsdóttir lauk prófum frá Tónlistarskóla Akureyrar 1983, Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986 og Hochschule fur Musik und Darstellende Kunst Stuttgart 1992. Hún er fastráðinn víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Steef van Oosterhout lauk einleikaraprófi frá Sweelinck Conservatorium Amsterdam 1987. Hann starfaði í Hollandi með ýmsum kammerhljómsveitum m.a. Nederlands blazersensemble og lék með sinfóníuhljómsveitum þ.á.m. Consertgebouwhljómsveitinni í Amsterdam. Síðan1991 hefur Steef verið fastráðinn sem leiðari í slagverksdeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands.