Straumurinn liggur til Dalvíkur

Fjölbreyttur matseðill – 25 réttir, fiskborgarar á stærsta færibandagrilli landsins, fish and chips, filsur- fiskipylsur og laxasashimi í boði Arnarlax sem er nýr aðalstyrktaraðili.  ný fiskasýning, togara gefið nafn, risaknús, myndataka í búrhvalskjafti, fiskisúpukvöldið og stórkostleg tónlistarveisla þar sem að landslið íslenskra tónlistarmanna mun fara á kostum í íslenskri tónlistarveislu.Þetta og margt fleira á Fiskideginummkla á Dalvík

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í 17. sinn. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis.

Vináttukeðjan 2017 – Setning fjölskylduhátíðarinnar “Fiskidagurinn mikli”

Framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla Júlíus Júlíusson setur hátíðina klukkan 18 á föstudag. Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri Akureyrarbæjar og stofnandi ástarvikunnar í Bolungarvík flytur vináttukeðjuræðuna 2017. Leikskólabörnin syngja, Guðmundur Kristjánsson og Selma dóttir hans taka lagið og Örn og Valdimar heilla gesti Vináttukeðjunnar. Friðrik Ómar, Gyða Jóhannesdóttir og karlaraddir ljúka dagskránni að venju með „Mömmu“ laginu. Börnin fá vináttufána og knúskorti og vináttuböndum verður dreift, flugeldum skotið upp. Að venju verður risaknús til þess að leggja vináttu og náungakærleikslínur fyrir helgina.

Fiskisúpukvöldið er nú haldið í þréttánda sinn, þetta er viðburður sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Heimamenn bjóða gestum og gangandi uppá mismunandi fiskisúpur í heimahúsum, görðum eða á götum úti. Súpukvöldið hefst að vanda kl. 20:15 á föstudagskvöld

Fiskidagurinn mikli

Á sjálfum Fiskideginum mikla, laugardeginum 12. ágúst milli kl. 11:00 og 17:00 verður að vanda margt í boði. Stundvíslega kl. 11:00 opna allar matarstöðvar og dagskráin hefst.

Björgúlfur EA 312 nýr skuttogari Samherja verður til sýnis við hafnargarðinn á hátíðarsvæðinu.

Að venju er vel hugsað um börnin og fjölskylduna alla á fjölskylduhátíðinni Fiskideginum mikla. Meðal dagskrárliða sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir börn eru Brúðubíllinn, Íþróttaálfurinn, Halla hrekkjusvín, Siggi sæti og Solla stirða og andlitsmálun. Leikhópurinn Lotta með Ljóta andarungann, teikniveröld, uppblásinn fótboltavöllur, veiði á bryggjunni og fleira.

Náttúran hefur skapað marga fiskana og í hafinu leynast þúsundir tegunda. Samherji veiðir t.d. um 50 þeirra. Á Fiskidaginn mikla milli kl 11.00 og 17.00 í salthúsinu verður börnum boðið að skapa og nota hugmyndaflugið til að búa til enn fleiri fiska. Börn á öllum aldri eru hvött til að teikna fisk, gefa honum nafn og hengja hann upp og allir sem skila mynd fá glaðning. 

Ný fiskasýning og nú innandyra í Allahúsinu

Allt frá árinu 2002 hefur verið sett upp áhugaverð fiskasýning á Fiskideginum mikla, sýning þar sem að sýndir hafa verið á þriðja hundrað tegundir af ferskum fiskum sem glatt hafa þúsundir manns.  Sýningin hefur ávallt verið utandyra. Í ár verður sýningin færð inn í hús og sett upp á nýjan máta með textum, lýsingum og á skjám. Það er að venju Skarphéðinn Ásbjörnsson sem heldur utan um sýninguna og hefur hann lagt mikla vinnu í þetta áhugaverða verkefni. Sýningin í ár er eitthvað sem að enginn ætti að missa af. Að venju verður hákarlinn af sýningunni skorinn kl. 15.00 og nú á nýjum stað, það er Gunnar Reimarsson sem sýnir listir sínar við hákarlaskurðinn.

Kvöldtónleikar og flugeldasýning 

Enn á ný er lagt af stað með stórtónleika að kvöldi Fiskidagsins mikla. Á fimmta tug tæknimanna, söngvara og hljóðfæraleikara taka þátt í þessari stórsýningu sem er að öllum líkindum ein sú stærsta og viðamesta sem hefur verið sett upp á Íslandi. Meðal þeirra sem koma fram eru heimamennirnir Friðrik Ómar, Matti Matt og Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Björgvin Halldórsson, Jónas Sig, Ragga Gísla, Birgitta Haukdal, Andrea Gylfadóttir, Friðrik Dór, Pálmi Gunnars, Blaz Rocka, að ógleymdum Ragga Bjarna. Að venju er það stórhljómsveit Rigg viðburða eða með öðrum orðum landslið Íslands sem spilar undir. Dagskráin endar með risaflugeldasýningu sem björgunarsveitin á Dalvík sér um.

 

Nýjast