20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Skemmtiferðaskip til Hjalteyrar
Sl. laugardagskvöld kom skemmtiferðaskipið Sylvia Earle til Hjalteyrar en líklegt verður að telja að það sé í fyrsta sinn sem skip slíkrar tegundar hefur viðkomu á Hjalteyri. Með skipinu voru u.þ.b. 120 farþegar og í áhöfn 70 manns. Farþegar voru selfluttir með léttabátum skipsins til lands þar sem þeir m.a. sinntu verkefni sem nefnt er Clean up Iceland en það gengur út á að hreinsa rusl á fjörum við landið.