20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Samstarfssamningur Þórs/KA og Greifans og samið við leikmenn
Pennar voru á lofti á Greifanum í gærkvöldi þegar stjórn kvennaráðs Þór/KA og Arinbjörn Þórarinsson fyrir hönd Greifans skrifuðu undir samstarfssamning til þriggja ára. Við þetta sama tilefni framlengdu þrír leikmenn Þór/KA samninga sína við liðið.
Það voru þær Sandra María Jessen, Agnes Birta Stefánsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, og Iðunn Rán Gunnarsdóttir sem endurnyjuðu samninga sína við liðið. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að þær stöllur hafi framlengt samninga sína og má nefna í þessu sambandi að flest öll félög landsins freistuðu þess að krækja í Söndru Maríu.
Stuðningur Greifans er ekki síður mikilvægur og kemur sér vel, og er Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, himinlifandi ,,Það er okkur mikils virði að eiga hauk í horni í jafn öflugu og vinsælu fyrirtæki og Greifinn er,“ segir Dóra Sif. „Stór hluti af rekstri félagsins er undir samstarfi við öflug fyrirtæki kominn og við lítum svo á að samstarf við knattspyrnulið kvenna í efstu deild sé beggja hagur. Við lítum því á þetta sem samstarf fremur en samning um styrk til félagsins, en samstarfið við Greifann er þó engu að síður mikill styrkur fyrir félagið, ef þannig má að orði komast.
Það að öflug fyrirtæki vilji eiga við okkur samstarf sýnir glöggt hver staða Þórs/KA er í samfélaginu á Akureyri enda höfum við átt lið í efstu deild frá 2006, eða óslitið í 18 ár og siglum nú inn í 19. árið í röð í efstu deild.“
Jóhann Kristinn þjálfari og Sandra María.
Jóhann Kristinn og Angela Mary
Jóhann Kristinn og Agnes Birta
Jóhann Kristinn og Iðunn Rán