Örnámskeið í hljóðupptöku tónlistar á Húsavík

Miðvikudaginn 7. júní, frá kl. 17.00 - 20.00, verður haldið örnámskeið í hljóðupptöku og rafrænni miðlun tónlistar fyrir byrjendur. Námskeiðið er hluti af listahátíðinni Skjálfanda, sem verður haldin í Samkomuhúsinu á Húsavík föstudaginn 9. júní.

Um er að ræða 3 klst námskeið þar sem þáttakendur fá að kynnast grunni við hljóðupptöku á tónlist, sem og að skila hljóðriti til að hlaða upp á internetið eða dreifa á annan hátt.

Markmiðið er að þátttakendur verði að einhverju leiti sjálfbærir í grunnupptökum eftir námskeiðið. Það er því forsenda þátttöku að hafa aðgang að tölvu yfir námskeiðið, einnig þurfa þátttakendur að afla sér tónlistarforrits - að lágmarki Garage band (Mac) eða REAPER (PC) - eða önnur forrit ef þau kjósa svo. Búnaðar til upptöku verður á staðnum, sem og hljóðupptökumíkrafónar og hljóðkort, og hljóðfæri tónlistarskólans en kennt verður í Tónlistarskólanum. Allur annar búnaður sem þátttakendur vilja koma með á námskeiðið er að sjálfsögðu leyfilegur.

Facebook hópur verður stofnaður utan um þátttökuna þar sem öll aðstoð við að afla sér forrits eða annars búnaðar, sem og leiðbeiningar, verður haldið til haga fram að námskeiði.

Það eru takmörkuð pláss í boði (eingungis 6 í heildina) og það er ókeypis þátttaka.  Áhugasömum er bent á að senda nafn, heimilisfang og aldur á skjalfandifestival@gmail.com fyrir miðnætti miðvikudaginn 17. maí. Fyrstir koma fyrstir fá, og verður tilkynnt um skráningu í sömu viku.

Leiðbeinendur eru:

Harpa Fönn Sigurjónsdóttir (Grúska Babúska, Vinnslan, Örvarpið, Harpa Fönn)
Rafnar Orri Gunnarsson (Tony the Pony, Time Rules, rafnar)

Nýjast