20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Óður til þekktra söngvara á Græna hattinum
„Á tímum sem þessum liggur vel við að beisla kvenorkuna í tónlistarheiminum og efna til tónleika á Græna hattinum,“ segir í tilkynningu en í kvöld, fimmtudagskvöld, munu þær Jónína Björt Gunnarsdóttir ásamt gestasöngkonunum Selmu Björnsdóttur og Katrín Mist Haraldsdóttur flytja sérvalin lög á Græna hattinum eftir margar af þekktustu söngkonum heims.
Þar á meðal Celine Dion, Whitney Houston, Adele, Emeli Sande og Beyonce. Hljómsveitina skipa þeir Hallgrímur Jónas Ómarsson gítar, Valgarður Óli Ómarsson trommur, Stefán Gunnarsson bassi, Ármann Einarsson píanó, Helga Hrönn Óladóttir bakrödd, Guðrún Arngrímsdóttir bakrödd. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00.
Á föstudagskvöldið á að heiðra rokksöngvarann Ronnie James Dio (f. 10. júlí, 1942 – d. 16. maí, 2010). Hann var bandarískur tónlistarmaður sem starfaði meðal annars með hljómsveitunum Rainbow, Black Sabbath og sveit sinni Dio. Hann var þekktur fyrir kraftmikla rödd sína og fantasíukennda textagerð. Tónlistarferill hans var einstakur og spannaði meira en 50 ár en hann gaf út 10 plötur gerði, sjö tónleikaplötur og tók þátt í ótal verkefnum. Hann ásamt Jimmi Bain og Vivian Campell voru forsvarsmenn Here N‘ aid verkefnisins, sem var samstarfsverkefni margra af stærstu stjörnum þungarokksinns á þeim tíma um að gefa út lagið We‘re Stars til að safna peningum til styrktar bágstaddra í Afríku.
Ronnie James Dio lést úr magakrabba 16. maí 2010. Vart þarf að taka fram að Dio hafði mikil áhrif á tónlistamenn um allan heim og íslenskir rokkhundar eru þar engin undantekning. Helstu lög Ronnie James Dio verði tekin á tónleikunum og það má segja að þar mun sannur þungarokksaðdáandi ekki verða fyrir vonbrigðum því að fyrir utan bandið sitt Dio þá mun nokkur Black Sabbath og Rainbow lög óma um sali. „Seiðkarlar með sverðir skildi. Regnbogar í myrkri Hornin upp og illir draumar!
Um ár er liðið síðan þessi sveit heiðraði Dio á Græna Hattinum og Hard Rock en þá var stappfullt og allt beinlínis brjálað,“ segir í tilkynningu. Hljómsveitina skipa þeir Stefán Jakobsson söngur, Hörður Halldórsson gítar, Sumarliði Helgason bassi, Hans Friðrik Guðmundsson orgel/hammond og Haukur Pálmason trommur. Tónleikarnir hefjast kl.22.00