Nýr fjölskyldusöngleikur í Samkomuhúsinu
Gallsteinar afa Gissa verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri þann 23. febrúar. Um nýjan fjölskyldusöngleik er að ræða eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
„Það er hreint dásamlegt að heimsfrumsýning á Gissa og gallsteinakastinu verði á Norðurlandi og ég held niðri í mér andanum af spenningi! Óska leikarar, töfrandi tónlist og göldróttur leikstjóri. Þetta verður bara algjört kast,“ er haft eftir Kristínu Helgu í fréttatilkynningu en Kristín gaf út samnefnda bók árið 2002.
Leikstjóri verksins er Ágústa Skúladóttir, leikmynd og búningar eru í höndum Þórunnar Maríu Jónsdóttur, lýsing eftir Lárus Heiðar Sveinsson og danshreyfingar eftir Katrínu Mist Haraldsdóttur. Hinn gamalreyndi Karl Ágúst Úlfsson leikur titilhlutverkið, afa Gissa sjálfan en með önnur hlutverk fara Benedikt Karl Gröndal, Birna Pétursdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson, María Pálsdóttir og Margrét Sverrisdóttir.
Með hlutverk barnanna fara Þórgunnur Una Jónsdóttir, Steingerður Snorradóttir, Örn Heiðar Lárusson og Daníel Freyr Stefánsson. Gallsteinar afa Gissa fjallar um systkini sem búa á annasömu nútímaheimili og finnst sífellt verið að skipa sér fyrir. Eftir heimsókn til afa Gissa sem liggur á sjúkrahúsi eftir gallsteinaaðgerð tekur lífið óvænta stefnu.