Mynduðu hjörtu á skólalóðinni gegn einelti

Mynd/Gunnar Björn Gunnarsson.
Mynd/Gunnar Björn Gunnarsson.

Árlegur baráttudagur gegn einelti var haldin á dögunum og nemendur og starfsmenn Síðuskóla létu ekki sitt eftir liggja. Allir fóru saman út á lóð og mynduðu tvö hjörtu með því að haldast í hendur. Stærra hjartað var myndað af nemendum en starfsfólk myndaði annað hjarta innan í því stóra.

"Við vildum með þessu sýna að við í skólanum stöndum saman gegn einelti af öllu tagi, erum góð hvert við annað og sýnum virðingu í samskiptum," segir Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri Síðuskóla, en sagt er frá þessu á vef Akureyrarbæjar. 

Nýjast