20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Litir Íslands á sænskri grundu
Laugardaginn 19. september verður opnuð samsýning níu íslenskra myndlistarmanna undir yfirskriftinni Litir Íslands eða Islandsfärger í bænum Hälleforsnäs í Svíþjóð. Á sýningunni eru tví- og þrívíð textílverk, bókverk, tvívíð myndverk, málverk, vatnslitamyndir, samklippur og pappírslágmyndir.
Þau sem sýna eru Anna Gunnarsdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Guðrún H. Bjarnadóttir (Hadda), Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir, Ívar Freyr Kárason, Jónborg Sigurðardóttir (Jonna), Ragnar Hólm Ragnarsson og Sigurður Magnússon. Vegna Covid-19 faraldursins verður opnun sýningarinnar með óhefðbundnum hætti og mælst til þess að ekki verði fleiri en 10 saman í sýningarrýminu.
Þeir íslensku listamenn sem ætluðu að vera við opnun í Hälleforsnäs hafa lagt þau áform á hilluna en í staðinn verður sent út beint á netinu þar sem mun fara fram samtal nokkurra þátttakenda í sýningunni, sænskra listamanna og listnema.
Sýningin í Hälleforsnäs er til komin vegna samstarfs Gilfélagsins á Akureyri við hóp sænskra listamanna sem sýndi í Deiglunni á Akureyri haustið 2018. Sýningin stendur til 22. nóvember og er opin að sænskum tíma á virkum dögum frá kl. 11-17 og um helgar frá kl. 10-14. Verkefnið hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar, frá Svensk-islänska samarbetsfonden og úr Lettereska sjóðnum.