20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Listahátíð RÖSK í Hrísey
Föstudaginn 3. ágúst kl. 17:00 hefst listahátíð RÖSK við Sæborg samkomuhúsinu í Hrísey. Tólf listamenn sýna verk sín og verður gengið á milli listaverkanna sem flest eru til sýnis utandyra og eru í ýmsum listformum, m.a. skúlptúrar, málverk, dans, gjörningur og tónlist.
Með þessari listahátíð eru RÖSK listhópurinn að ljúka dvöl sinni í Hrísey þar sem RÖSK hefur dvalisti við vinnu sína og haldið listasmiðjur fyrir börn og fullorðna við góðar undirtektir.
"Hátíðin ferfram þetta kvöld og standa listaverkin til sýnis alla næstu vikuna á eftir og eru allir hjartanlega velkomnir," segir í tilkynningu.
Listamennirnir sem sýna á hátíðinni eru:
Brynhildur Kristinsdóttir
Dagrún Matthíasdóttir
Jónborg Sigurðardóttir - Jonna
Thora Karlsdóttir
Ívan Mendes
Hekla Björt Helgadóttir
Aðalsteinn Þórsson
Inga Höskuldsdóttir
Steinunn Matthíasdóttir
Helga Björg Jónasardóttir
Snorri Ásmundsson
Yuliana Palacios
RÖSK Listhópurinn samanstendur af 4 myndlistakonum sem eru starfandi á Akureyri. Þær eru Brynhildur Kristinsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Jónborg Sigurðardóttir -Jonna og Thora Karlsdóttir. RÖSK hefur vakið verðskulda athygli í Listagilinu á Akureyri með ýmis listaverk, sýningar, barnasmiðjur, gjörninga, skúlptúra og þátttökuverk á hátíðum Akureyrarbæjar, á Listasumri, Jónsmessuhátíð og Akureyrarvöku síðustu ár.
Hér má sjá heimasíðu hópsins: https://sites.google.com/site/rosklisthopurinn/