Leikfélag Akureyrar býður til GRRRRRRLS danssmiðju

Leikfélag Akureyrar býður til  dansvinnusmiðju fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára, leiðbeinandi er Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur. Í tilkynningu segir Ásrún að vinnusmiðjan sé sprottin úr danssýningunni GRRRRRLS sem sló í gegn í Reykjavík síðasta vetur. Í sýningunni tók hópur unglingsstúlkna yfir sviðið og lét rödd sína heyrast og ljós sitt skína. Nú verður unnið með svipaðar aðferðir og voru notaðar í sýningunni. En hvernig fer svona vinnusmiðja fram? 

„Við ætlum að dansa saman, syngja saman, tala saman, hlusta á tónlist saman og bara hanga saman.” svarar Ásrún og bætir við: „Við ætlum að reyna að svara spurningum einsog; Hvað þýðir samstaða fyrir hóp af stelpum á Akureyri í dag? Hvað þýðir það fyrir þessar stelpur að hafa eina sameinaða rödd? Hvað vilja þær segja? Hvaða merkingu hefur það fyrir þær að standa saman? Hvað þýðir það fyrir þær að vera saman, að standa upp fyrir hvorri annarri, að vera ein fyrir alla - allar fyrir eina.”  

Ásrún segir einnig að stelpunum verði gefið valdið þessa helgi og megi gera hvað sem þeim dettur í hug í samvinnu við hvor aðra og hana sjálfa. “Við munum m.a. búa til dansa og texta og spila okkar uppáhalds tónlist.“ Vinnusmiðjan endar svo á stuttu stefnumóti við áhorfendur þar sem þeim gefst tækifæri á því að heyra og hitta stelpurnar og sjá afrakstur smiðjunnar. Vinnusmiðjan er án endurgjalds og er hluti af Borgarasviði LA 2017-2018

Leikfélag Akureyrar vill  með Borgarasviðinu gefa borgurum Akureyrar tækifæri til að upplifa leikhúsið sem rými þar sem fólk hittist, hefur samskipti og tengist skapandi,þvert á aldur, kyn og félagslegan bakgrunn. Vinnusmiðjan er daganna 6. 7. og 8 október í Hofi og Samkomuhúsinu. Skráning á námskeiðið er á mak.is

Nýjast