Kirkjulistavika á Akureyri
Á föstudaginn kemur þann 21. apríl hefst hin árlega Kirkjulistavika sem nú er haldin í 15. skipti í Akureyrarkirkju, en hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1989. Kirkjulistaviku lýkur þann 30. apríl. Framundan er rúm vika full af fjölbreyttum viðburðum þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Helstu markmið Kirkjulistaviku hafa frá upphafi verið að efla samvinnu og tengsl listafólks við kirkjuna og gefa Akureyringum kost á að njóta góðra lista í kirkjunni. Að vanda er lögð áhersla á fjölbreytileika og í boði verða óvenjulegir viðburðir auk hefðbundinna stórtónleika. Aðgangur að flestum viðburðum Kirkjulistaviku er ókeypis.
Dagskrá:
Föstudagur - 21. apríl
17:00-18:00 Ljósmyndasýning meðlima ÁLKA. Hátíðin opnar á spennandi ljósmyndasýningu
Áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar. Viðfangsefnið er kirkjan og starfið frá
fjölbreyttum sjónarhornum. Sýningin fer fram í Safnaðarheimilinu.
Laugadagur - 22. apríl
14:00-15:00 60+ tónleikar í Safnaðarheimilinu. Reyndir tónlistarmenn sem hafa fagnað
sextugsafmæli sínu bera hitann og þungann af þessum tónleikum. Fram koma
Þuríður Baldursdóttir, Rafn Sveinsson, Reynir og Þuríður Schiöth og
Kvennakórinn Embla undir stjórn Roars Kvam.
Sunnudagur - 23. apríl
11:00–12:00 Hátíðarmessa. Prestar kirkjunnar, organistar og Kór Akureyrarkirkju í
hátíðarskapi
16:00-17:00 Fortissimo. Kraftmiklir tónleikar!
Kór Akureyrarkirkju, Blásarasveit Tónlistarskóla Akureyrar, Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir organisti og einsöngvararnir Halla Ólöf Jónsdóttir,
Guðrún Ösp Sævarsdóttir, Steinar Gunnarsson og Reynir Gunnarsson, flytja
tignarlega tónlist eftir Schubert, Dvořák, Grieg, Malotte o.fl
Stjórnendur: Gert-Ott Kuldpärg og Eyþór Ingi Jónsson
Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju.
Miðaverð: 2500 kr, enginn posi á staðnum.
Mánudagur - 24. apríl
12:10-12:40 Margrét, Magna og María. Margrét Árnadóttir sópransöngkona og Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir flytja Maríukvæði úr öllum áttum.
Þriðjudagur - 25. apríl
12:10-12:40 Una og orgelið. Hin unga og efnilega Una Haraldsdóttir, leikur á orgel
Akureyrarkirkju. Á efnisskrá eru verk eftir Bruna, Buxtehude, Corrette
og Messiaen
Miðvikudagur - 26. apríl
12:10-12:40 Birkir Blær lúppar. Hinn hæfileikaríki Birkir Blær syngur, spilar og
„loopar“ í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
18:00-19:00 Unga fólkið er yfirskrift tónleika þar sem langt komnir tónlistarnemendur leika
og syngja fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af íslenskum sönglögum,
kvikmyndatónlist, Eurovisionlögum og klassískum píanóperlum.
Fram koma Strengjasveit 3 úr Tónlistarskólanum á Akureyri, Stúlknakór
Akureyrarkirkju, Þórunn Bjarnadóttir, Una Haraldsdóttir, Salka Björt
Kristjánsdóttir og Alexander Smári Edelstein.
Fimmtudagur - 27. apríl
12:10-12:40 Orgeltónleikar Sólu – Sólveig Anna Aradóttir, sem hefur starfað sem organisti
við Akureyrarkirkju í vetur kveður Akureyri í bili með kröftugum orgeltónleikum.
20:00-21:00 Moz-Art. Lára sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari, Ásdís Arnardóttir sellóleikari og
Eyþór Ingi Jónsson organisti skipa tríó sem flytur tónlist eftir þá Leopold
Mozart, Johann Heinrich Schmelzer og Josef Rheinberger.
Laugadagur - 29. apríl
14:00-15:30 Listsýning nýbúa á Akureyri. Fjöldi erlendra listamanna frá hinum ýmsu
heimshornum sem búsettir eru á Akureyri koma fram og sýna list sína. Söngur,
hljóðfæraleikur og dans frá ýmsum menningarheimum munu prýða þessa
sýningu. Sýningin verður í Safnaðarheimili kirkjunnar.
Fram koma Daniele Basini, Gert-Ott Kuldpärg, Juffe, Jutta Knur, Adriana
Delahante Matienzo, Dimitrios Theodoropoulos og Dansfélagið Vefarinn
Sunnudagur - 30. apríl
11:00-12:00 Lokahátíð barnastarfsins í Akureyrarkirkju. Yngri og Eldri barnakórar
kirkjunnar flytja brot af því besta sem æft hefur verið í vetur og eftir stundina
verður vorhátíð í Safnaðarheimilinu.
20:00-21:00 Cohen-messa. Stórkostlegi listamaðurinn Leonard Cohen er nýlega fallinn frá
og mun sr. Svavar A. Jónsson minnast hans, fjalla um skáldið og texta hans.
Tónlist Cohens flytja þau Konni Bartsch, Elvý G. Hreinsdóttir, Kristján Edelstein,
Ólafur Sveinn Traustason og Eyþór Ingi Jónsson.