HM sýnt á risaskjá í Gilinu

Akureyringurinn Aron Einar Gunnarsson er landsliðsfyrirliði Íslands.
Akureyringurinn Aron Einar Gunnarsson er landsliðsfyrirliði Íslands.

Útvarp Akureyri FM 98,7 og Ölstofa Akureyrar hafa tekið höndum saman og bjóða Akureyringum upp á HM á risaskjá neðst í Gilinu. Íslendingar spila að minnsta kosti þrjá leiki á HM eins og kunnugt er en mótið hefst í byrjun júní.

Þegar EM var fyrir tveimur árum var boðið upp á keppnina á risaskjá og mældist það vel fyrir og stemmingin góð. Í tilkynningu frá Ölstofa Akureyrar og Útvarp Akureyri FM 98,7 er lofað enn meiri stemmingu og rafmagnaðri spennu. Settur verður upp 15 fermetra risaskjár neðst í gilinu, rétt eins og þegar Akureyrarvaka er. Þannig geta Akureyringar safnast saman og hvatt íslenska liðið til dáða.

Þetta er stærsta mót sem íslenskt karlalandslið í knattspyrnu hefur tekið þátt í, HM í Rússlandi. Það liggur fyrir að Íslendingar munu leika í D-riðli og mæta Argentínumönnum í Moskvu, 16. júní, Nígeríu í Volgograd, 22. júní, og Króatíu í Rostov við Don, þann 26. júní.

„Það er Útvarp Akureyri FM 98,7 og Ölstofu Akureyrar mikill heiður að fá að bjóða Akureyringum upp á að koma saman og fylgjast með þessu einstaka ævintýri sem verður fyrir víst í minnum haft - hvernig sem leikar fara.

Ölstofa Akureyrar og Útvarp Akureyri FM 98,7 þakka sérstaklega Akureyrarstofu og Akureyrarbæ fyrir að liðsinna í þessu frábæra verkefni sem svo sannarlega setur lit sinn á samfélagið hér á Akureyri.

Á leikdögum verður mikil stemming og atriði bæði á undan leik, í hálfleik og eftir leik. Þetta er því nokkurra klukkustunda veisla í hvert skipti sem sent verður beint frá Rússlandi á risaskjánum í gilinu,“ segir í tilkynningu.

Nýjast