20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
HM stemmning í Gilinu sem verður lokað til klukkan átta
Leikur íslenska landsliðsins gegn Nígeríu á HM í knattspyrnu í Rússlandi verður sýndur beint á risaskjá í Listagilinu kl. 15 í dag. Af þeim sökum hefur verið lokað fyrir umferð ökutækja um Gilið og verður svo til kl. 20 í kvöld, er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.
Gríðarleg stemning er fyrir leiknum um land allt og víðast þar sem því verður við komið er vinna lögð niður meðan á honum stendur.
"Akureyringar eru hvattir til að upplifa stemninguna í Listagilinu í brakandi blíðu og njóta leiksins. Velkomið er að mæta með stóla ef fólk vill sitja en svo er líka gaman að fagna standandi. Minnt er á að þetta er reyklaust svæði. Göngum snyrtilega um bæinn okkar og skiljum ekki eftir rusl," segir á vef Akureyrarbæjar.
Áfram Ísland!