Heimsþekktur söngvari í Akureyrarkirkju

Inga Rós Ingólfsdóttir, Hörður Áskelsson og Andreas Schmidt.
Inga Rós Ingólfsdóttir, Hörður Áskelsson og Andreas Schmidt.

Næst elsta tónleikaröð landsins, Sumartónleikar í Akureyrarkirkju, fagnar 30 ára afmæli í sumar. Þrennir tónleikar hafa þegar farið fram þetta sumarið en tónleikar eru alla sunnudaga í júlímánuði. Í tilkynningu kemur fram að aðsókn hafi verið mjög góð og tónleikagestir verið jafnt ferðamenn sem heimamenn. Aðgangur er ókeypis að öllum tónleikunum.

Á fjórðu tónleikum sumarsins á sunnudaginn kemur þann 23. júlí koma fram Andreas Schmidt barítón, Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og Hörður Áskelsson organisti. Þau flytja kirkjulega tónlist, gamla og nýja, eftir tónskáldin Schutz, Bach, Dvorák, Mendelssohn, Sain Saens, Árna Thorsteinsson og frumflytja nýtt verk eftir akureyrska tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson. Verkið er sérstaklega samið fyrir tríóið og nefnist Sól ek sá. Inga Rós hefur leikið í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1982 og var í áratugi félagi í Kammersveit Reykjavíkur.

Inga Rós er framkvæmdastjóri Listvinafélags Hallgrímskirkju og Kirkjulistahátíðar. Hörður Áskelsson er organisti og kantor Hallgrímskirkju, stjórnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju og Schola cantorum og auk þess listrænn stjórnandi Listvinafélagsins og hátíðum á vegum þess.

Frumraun Andreasar Schmidt á óperusviðinu var sem Malatesta í óperunni Don Pasquale eftir Donizetti árið 1984. Hann hefur komið fram í flestum þekktustu óperuhúsum heims, La Scala, Covent Garden og á Metropolitan. Hann er einnig virtur óratóríu- og ljóðasöngvari. Hann kenndi við Carl Maria von Weber tónlistarskólann í Dresden frá 2005 og frá 2010 við Hochshule für Musik und Theater München.

Styrktaraðilar tónleikaraðarinnar eru Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, Menningarsjóður Akureyrar og Tónlistarsjóður. Tónleikarnir eru hluti af Listasumri á Akureyri.

Nýjast