Handbendi brúðuleikhús frumsýnir Tröll
Á laugardaginn næstkomandi frumsýnir Handibendi Brúðuleikhús verkið Tröll í Samkomuhúsinu.
En hvaða tröll eru þetta? Í 17 milljón ár (gæti skeikað um öld eða tvær) hafa tröllin átt þessa eyju alveg fyrir sig. Þau grófu gljúfur, gerðu sér heimilislega skúta, og nutu kyrrðar og friðar miðnætursólarinnar. Tröllin voru glöð. En núna… Núna er allt breytt. Mannfólkið er komið. Það byggir hús. Leggur vegi. Hefur hátt… Svo óskaplega hátt. Geta þessar ólíku verur búið saman?
Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu tröllasögum landsins, sögð með sjónarhorni lítillar telpu og óvanalega vininum hennar úr fjöllunum. Brúðurnar eru handgerðar, og hljóðmyndin er samin af hinu virta breska tónskáldi Paul Mosley, en söngurinn er í höndum heimamanna í Húnaþingi vestra. Þetta er svolítil þjóðsaga, smá draugasaga, eintómir töfrar. Tröll eru ógleymanleg leikhúsupplifun fyrir alla fjölskylduna.
Leiksýningin Tröll er framleitt af Handbendi - Brúðuleikhús, atvinnuleikhús Norðurlands vestra, En þau kynna með stolti sýninguna Tröll, sem er innblásin af íslensku þjóðsögunum, án þess að vera endursögn á þeim. Greta Clough, listrænn stjórnandi hjá Handbendi, var listamaður hússins hjá Little Angel Theatre í London árið 2014, og var tilnefnd til verðlauna Bresku listastofnunarinnar fyrir framsækið barnaleikhús árið 2015. Hún býr nú í Húnaþingi vestra.