Fundur fólksins í Hofi

Fundurinn fer fram í Hofi. Mynd/Auðunn Níelsson
Fundurinn fer fram í Hofi. Mynd/Auðunn Níelsson

Lýðræðishátíðin Fundur fólksins fer fram um helgina, dagana 8. og 9. september í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram en í fyrsta skiptið sem hún fer fram utan höfuðborgarsvæðisins. Fundur fólksins sækir innblástur sinn í sambærilegar hátíðir sem haldnar eru á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Hátíðinni er ætlað að virkja lýðræðisþátttöku almennings og skapa vettvang til þess að ræða málefni samfélagsins.

Nýjast